Já komið þið nú blessuð og sæl!!
Það er nú heldur betur búið að vera sældarlíf hjá okkur síðustu daganna. Við komum hingað út í Hrísey þann 15. des, til hamingju með daginn Inga Hanna
, og síðan þá er maður búinn að hafa það náðugt.
Við erum búin að fara nokkrum sinnum suðrí Ásgarð til ömmu og afa og Tönju og einu sinni í bæinn að versla smá. Annars erum við bara búin að vera hér úti í Lambhaga; borða, sofa, lesa, leika okkur og bara slappa af. Sældarlíf eins og það gerist best
Jólin eru búin að vera alveg yndisleg. Við vorum hér átta í graut á þorláksmessu, ég segi átta af því að hann Hannes Haukur sat við borðið með okkur í barnastól sem ég átti einu sinni og var í fyrir nærri 29 árum síðan. Þetta kallar maður sko nýtingu á hlutunum!!! Svo á aðfangadag þá fórum ég, Narfi Freyr, Haukur og Unnur í messu klukkan sex og mamma og pabbi voru að syngja í kórnum þannig að þau voru þar líka. Óli var heima hjá Hannesi Hauki og Geysi. Messan var frábær og leið mér æðislega að vera komin í kirkjuna heima. Eftir messu var brunað heim í hamborgarhrygg og meðlæti. Alveg hreint frábær matur og Hannes Haukur sat hjá okkur en fékk ekki neitt að þessu sinni. Það kemur að því að þú færð eitthvað með okkur elskan mín
Eftir matinn var gengið frá og vaskað upp og svo var farið í það að taka upp pakkana. Og vá!! Það var svo mikið af pökkum hér, náði langt út fyrir tréð og hefur held ég aldrei verið svona mikið af pökkum hér áður. Pabbi sá um það að lesa á merkimiðana og færa okkur pakkana og ég held að hann hafi verið að flýta sér eitthvað kallinn af því að við höfum aldrei verið eins fljót að taka upp og núna!!! Við Óli fengum heilann helling eins og t.d. kaffikönnu, hnífaparasett, töfrasprota, teketil, trefla,jólaskeið, jólaskraut, jólasvein, konfekt og svo fékk ég eina sér gjöf sem voru náttföt
Hannes Haukur fékk líka fullt af pökkum, meðal annars úlpu, liverpool búning, svæfilver, vetrargalla, fullt af dóti og fullt af fötum. Vil ég bara þakka öllum kærlega fyrir okkur. Svo þegar búið var að tæta upp pakkana fóru mamma, pabbi, Haukur, Unnur, Geysir og Narfi Freyr suðrí Ásgarð að heilsa upp á ömmu og afa og Svönu, Öglu og Báru. Við litla familían vorum bara hér heima.
Á jóladag var svo kaffi hjá ömmu og afa og fórum við þangað. Stefán Pétur frændi var þar með fjölskylduna sína þannig að við vorum þó nokkur saman komin. Hannes Haukur hafði bara gaman af að hitta nýtt fólk og þau að sjá hann. Í gær var svo jólaball í Sæborg og fórum við mamma og pabbi með Hannes Hauk. Haukur, Unnur og Narfi Freyr voru farin í land að keyra á móti foreldrum Unnar sem komu í gær og ætla að vera hér hjá okkur fram yfir áramót. Jólaballið var bara rosalega gaman og Hannes Haukur dansaði aðeins með okkur í fanginu á afa sínum. Svo komu jólasveinar í heimsókn til okkar alla leið úr Dimmuborgum í Mývatnssveit. Eftir ballið var kaffi hjá ömmu og afa og komu Haukur, Unnur, Narfi og Erna og Kiddi þangað líka. Óli var bara hér heima í Lambhaga, vildi ekki fara á jólaball eða í kaffi. Um kvöldið var svo Öldumatur hér í Lambhaga og eftir matinn var litli kúturinn var baðaður.
Í dag er svo bara ósköp venjulegur dagur eftir allt átið og kaffiboðin. Mamma fór í vinnu og pabbi líka og hin eru bara úti í Akri. Hannes Haukur sefur úti í vagninum sínum og Óli slappar af við sjónvarið. Þannig að við höfum það bara ósköp gott og notalegt hér í Lambhaganum
Pabbi/afi á svo afmæli í dag og fær hann kveðju í tilefni dagsins. Einnig eiga afmæli í dag Tedda og Þóra og sendum við þeim líka afmæliskveðjur. Til hamingju með daginn öll sömul.
Jæja ég held að þetta sé bara komið fínt í bili, kær kveðja frá okkur hér í Hrísey,
María og fjölskylda.